Veturinn 2016-17 var spáð og spekúlerað og niðurstaðan að ef ætti að klára húsið sem var á bílnum myndi það kosta mikla vinnu og nánast endurbyggingu og það yrði allt of mikil vinna. Þannig að ákveðið var að fara frekar í plan B sem fól í sér að skipta um hús.
Húsið sem stóð til boða var á gömlum eldhúsbíl sem hafði verið afskrifaður eftir tjón en húsið var óskemmt en það var of langt þannig að það þurfti að stytta það og sumarið 2017 var hafist handa. Gamla húsið var tekið af, nýja húsið stytt og settur í það nýr gafl og það síðan hýft yfir og fest á.



Áður en húsið var sett á var hann viktaður:
(Framan: 3470kg – aftan 1960kg – allur bíllinn 5420kg)


Síðan var hann viktaður eftir að húsið kom á:
(Framan: 3130kg – aftan 3740kg – allur bíllinn 6870kg)


Eftir smá pússun leit þetta svona út.

















