Farartækið og eigenda saga

Hvað vitum við um hann?

Tegund: MAN 11.168 HA-LF, svokallaður “Ponton-Kurzhauber”
Árgerð: 1973
Fyrst skráður: 31. Janúar 1974
Lýsing: 11 tonna húddbíll með fjórhjóladrifi og tvöföldu húsi.
Yfirbygging: CARL METZ GmbH. Karlsruhe
Tegund yfirbyggingar: TFL 16

1. Eigandi : 1973 – 1999: Freiwillige Feuerwehr Mandelbachtal Ommersheim.

Bíllinn var smíðaður sem TLF 16, (TLF þýðir Tanklöschfahrzeug eða slökkvibíll með tank) og tankurinn hefur líklega verið 2400 lítrar. Aftast var dælan.

Myndir eru fengnar af Facebook síðu slökkviliðsins: Feuerwehr Ommersheim

2. Eigandi : 1999 – 2014: Deutsches Rotes Kreuz OV Mandelbachtal Ormesheim.

Bílnum breitt í “GW-San” (Gerätewagen Sanität) þ.e. bíll með búnaði til að setja upp meðferðarstöð fyrir stórslys. Tankur og dæla tekin í burtu, sett í hann rafstöð og hann málaður hvítur.

Myndir eru fengnar á þessari síðu: Bos-Fahrzeuge.info

3. Eigandi : 2014 – 2015: Óþekktur bílasali.

4. Eigandi : 2015 – *: Einar Steinsson, Jóhannes Steinsson og Jan Dirk Elstermann

(Jan seldi Einari og Jóhannesi sinn hlut þegar bíllinn var fluttur til Íslands 2016)

Áður en hann var fluttur til Íslands var hann umskráður sem venjulegur vörubíll en áður var hann skráður sem björgunartæki. Hann var settur á einföld hjól að aftan, dekkin stækkuð úr 8.25 x 20 í 365/60 x 20 og neyðarljós, rafstöð og heljarmikið ljósamastur fjarlægð ásamt fleyra óðarfa dóti. Stærri dekk gerðu það að verkum að hægt var að halda góðum umferðarhraða en áður var hann óþarflega lágíraður.

This entry was posted in Trukkurinn. Bookmark the permalink.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.