Við bræðurnir erum búnir að eiga nokkra fjórhjóladrifs bíla og finnst gaman að því að ferðast og það var vinnan okkar í langan tíma að aka ferðamönnum um Ísland. Það hefur alltaf verið draumurinn að eignast góðan trukk með “íbúð” til að nota til ferðalaga í byggð og óbyggð. Og dag einn sáum við þennan auglýstan og ákváðum að láta draumurinn verða að veruleika.
